Lét sig síga niður á laki

Núna síðustu 3 eða 4 daga hefur verið nánast á hverjum degi umfjöllun í fréttum um konu sem slapp ótrúlega þar sem henni hafði verið misþyrmt og hafði verið læst inn í herbergi á 8 hæð. Frásögn konunnar er á þann veg að hún starfaði hjá lýtalækni. Einn daginn ásakaði lýtalæknirinn hana um að stela úr peningakassanum (sem getur verið rétt þar sem hún játar að hafa einhvern tíma tekið einhvern smápening úr kassanum). Hins vegar í staðin fyrir að reka konuna eða kæra að þá barði vinnuveitandinn hana og skar hana með einhverju eggvopni. Klippti hárið á henni í einhverjar tægjur og læsti hana svo uppi á 8 hæð á spítalanum. Konan sem er öll blá, marin og bólgin eftir barsmíðarnar og með skurði á höndum taldi líklegt að ef henni tækist ekki að flýja að þá mundi hún ekki komast í burtu á lífi. Hún ákvað að binda saman lök og rúmfatnað sem hún fann þarna og síðan klifraði hún úr glugga á baðherbergi á 8 hæð og niður á þak á 1 hæð (7 hæðir). Þaðan komst hún út og gat leitað sér hjálpar. Að sjá myndir af henni í sjónvarpi að þá er hún allstaðar marin hendurnar stokkbólgnar. 
Það var skrítið að fyrsta daginn sem sýndar voru myndir af henni að þá var andlitið ruglað (til að hún þekktist ekki). Maður sá þó að hún var með nánast svart glódrauga á báðum augum. Síðar í sama fréttatíma að þá var eins og verið væri að tala við hana eftir hefðbundna fréttaupptöku að þá var andlitið óruglað. Ég held að þetta hafi verið mistök en þetta gekk samt í töluverðan tíma.
Samt er þetta töluvert áræði að fara út um glugga á áttundu hæð og klifra niður "lak". En hefur sjálfsagt bjargað lífi hennar.

Mynni auðvitað á greinarnar mínar á thaiiceland vefnum  

www.thaiiceland.com
...hún væri lokuð inni og allt svo blaut í kringum um hana og að hún kæmist ekki út....
...pakka sem innihélt 2 fartölvur, gullkeðju, 2 dýra farsíma og síðast en ekki síst USD 8.500 dollara í seðlum....
...Hér í Thailandi er enn verið að tala um lestarslysið sem var her í byrjun mánaðar. Nú eru menn að tala um hvort...
.þó þetta sé ekki viðurkennt Scandinaviskt velferðarland..
..nú hefur verið mikið um rigningar í Bangkok og allt á floti í sumum hverfunum þar..
..Hann segist hafa skotið aftur í bilin á meðan hann keyrði og hlaðið byssuna aftur og haldið áfram að skjóta allt á meðan hann keyrði, (hvernig svo sem það er hægt????)...
..(fyrsta sinn sem ég hef heirt að nokkur skot í mann séu ekkert hættulegt)...
..Hann segist hafa keyrt nokkra hringi í kring um flugvöllin (flugvöllurinn er í miðri Bangkok) og síðan hafi hann dregið fram byssuna og skotið..

Kveðja thaiiceland www.thaiiceland.com Heimasíðan mín. Endilega kíkja.
Fyrir þá sem hafa áhuga á Windows 7

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband